Konurugl

Tuesday, May 20, 2008

Skakka-Ásta

Sigurást Júlía er hægrisinnuð. Í síðustu skoðun var mikil áhersla lögð á að við foreldrarnir myndum leiðrétta þennan vanda. Mér skilst að það sé best að gera þetta áður en þau fá kosningarétt, en helst fyrir 3 mánaða.

Ég og litla j fórum í höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun. Þar voru hendur lagðar á hana og snúið upp á hana. Hún var ekki eins mikið J eftir þá meðferð. Henni leið reyndar mjög vel. Kveinkaði sér eitthvað smá, en endaði á að sofna í höndunum á konunni. Við eigum svo að koma aftur eftir rúma viku, því ekki tókst að sparka þessum hægrivanda úr með einni meðferð. Kannski erfiðara þar sem pabbinn er haldinn sömu þráhyggju.

2 Comments:

  • Spurning um að panta tíma fyrir pabban líka :)

    By Anonymous Anonymous, At 1:40 PM  

  • Já það er eins gott að leiðrétta þetta sem fyrst, ekki gott að vera hægri sinnuð til lengdar. Vona að það gangi sem best hjá ykkur.

    By Anonymous Anonymous, At 4:47 PM  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home